Hæ manstu eftir mér
16.01.2008 12:25:23 / helenadk

Enn i Cambodiu

Tetta er alveg otrulega fallegt land!!
Bunar ad fara i batsferd, motoferd, hjolaferd og jeppaferd sidustu 4 daga!
Allt alveg olysanlega flott!! Jeppaferdin minnisstaedust nuna aftvi ad hun var i gaer hehehe en vid keyrdum gegnum frumskog uppa fjall og saum yfir strondina og og landid.. frabaert! Endudum a batsferd (nr2) tar sem vid horfdum a solsetrid..... djises hvad tad er ekki til lysingarord yfir tetta!!!! Eg saknadi svo nyju myndavelarinnar minnar i tessum ferdum, pinu ful yfir ad hafa ekki tekid hana med! En Christine er med fina myndavel svo vid nadum nokkrum otrulegum myndum i ferdunum.
Erum i Phnom Penh og erum ad fara i frekar rosalega skodunarferd a morgun, aetlum ad skoda khmer rouge killing fields og soguna i kringum khmer rouge timabilid. Verdur minna brosad ta en sidustu daga held eg en samt gott ad laera um soguna!
Vid holdum svo til Siam Reap tar sem vid forum og skodum angkor wat og fleiri stadi og aetlum ad kaupa okkur langtrad nudd sem kostar by the way ingen ting!!
heheh ekki buin ad tala islensku i ruma viku nuna og er ad reyna ad halda dagbok, hun er a koflum half donsk hehe en tad er bara fyndid
Skrifa meira um eitt fallegasta land sem eg hef komid i seinna
Suas dei 


» 17 hafa sagt sína skoðun

11.01.2008 14:29:28 / helenadk

Cambodia

Ó my goodness!!!
Tetta er natturulega algjorlega brilliant land! Natturufegurdin herna er olysanleg! og folkid herna ovenju vingjarnlegt og hjalpsamt!
Vid byrjudum reyndar ferdina i Taelandi en tad var ekkert spennandi, alltof mikid af folki og mikid areyti fra ollum ad kaupa hitt og kaupa tetta
Svo vid drifum okkur bara yfir til Cambodiu strax daginn eftir, gistum i litlum bae sem heitir Krong Koh Kong og hittum par sem vid skodudum baeinn med og bordudum a litlum lokal matsolustad, otrulega godur matur!!
Vid tokum svo bat til Shianoukville og batsferdin var GEDVEIK otrulega flott utsyni og gatum verid i solbadi a toppnum. stoppudum a litilli eyju tar sem allir og eg meina ALLIR torpsbuarnir toku a moti okkur bara til ad vinka og segja HELLO og reyndar reyna ad selja soldid avexti. Allir krakkarnir herna snua sig ur halslid tegar madur labbar framhja teim, skritid ad sja 2 storar (ja eg er frekar stor herna ;) ) ljoshaerdar stelpur labbandi um og allir vilja segja Hello vid okkur, tad er vist rosa sport hehehe meira ad segja nokkrir fullordnir sem heilsa okkur og flissa svo tegar vid svorum hehe
En nuna erum vid i Shianoukville sem er soldid turistalegur, minnir pinu a solstrandarstadina en um leid og madur fer af strondinni er tetta ekkert eins!
A morgun forum vid i snorkling batsferd i 3 eyjar herna rett hja, svo aetlum vid ad skoda baeinn betur a sunnudaginn og manudaginn faera okkur til Kampot og skoda einn af fjolmorgum national park i jeppa :)
Laet heyra meira i mer senere
Hafid tad gott a klakanum i kuldanum reyni ad senda nokkra solargeisla til ykkar,
Kvedja bleika Helena :D

» 4 hafa sagt sína skoðun

09.12.2007 12:26:25 / helenadk

Lélegur Bloggari!

Ég er búin að vera alveg ótrúlega utanvið mig síðustu vikur.. er alltaf að gera eitthvað en næ samt ekki að gera neitt... Skrítið!

En ég er samt búin að gera margt skemmtilegt ef ég stikla á stóru þá
Kom pabbi til Köben miðjan Nóv og ég fór og hitti hann og við fengum okkur humar-veislumáltíð í Nyhavn og fórum á Hviids og fengum okkur Öl og snafs :) Það var alveg yndislegt og ég komst að því að annað hvort apa ég allar mínar skoðanir eftir honum eða þá erum við bara "great minds that think alike" hehe
Ég fór í próf eftir það sem gekk bara rosalega vel :)
Svo komu mamma, pabbi, Rebekka og Gunni og hans foreldrar til Köben í julefrokost sem er orðin hefð síðustu 3.ára og var mjög gaman eins og alltaf.
Svo núna um helgina komu Valva frænka og Gunni til Köben og ég fór og hitti þau og þau buðu mér í dýrindis máltíð á Hereford (með sniglum og steik og öllu tilheyrandi ummmm) og svo buðu þau mér líka í jólatívolí. Mér leið eins og algerri dekurrófu! :) En það er yndislegt svona stöku sinnum.
Þannig að ég er búin að vera með annan fótinn í Köben síðasta mánuðinn (en finn samt ekki strákinn með hvítu húfuna :( )

Ég er orðin svolítið óþreygjufull eftir jólunum og heimkomunni! Langar að koma heim, hitta saumaklúbbspíurnar, fara í sund með Mörthu, FARA Í KLIPPINGU, knúsa familíuna og borða góðan mat!!
En ég verð víst að þrauka í rúma viku í viðbót!

HEY!! ég er með skemmtilegar fréttir hehe ég er að fara til Kambódíu og Víetnam í janúar :D Fer með sænskri vinkonu minni og við ætlum bara að slaka á á ströndunum og skoða svolítið löndin og bara hafa það nice! Aðeins að fá smá frí frá skólanum! ekki laust við að það sé pínu skólaþreyta hér á bæ! 

Takk fyrir að lesa bloggið:) Lofa að skrifa eina jólafærslu :)
Ciao


» 7 hafa sagt sína skoðun

01.11.2007 10:23:37 / helenadk

Ó mæ gúdness

Það er búið að vera alveg ótrúlega mikið að gera síðustu vikur :)

Eftir að hafa staðið mig vel í einu erfiðasta prófinu á seinni árum læknisfræðinnar skellti ég mér til NY til að hitta systur mína og litlu englabossana mína :)
Við fórum samferða út systurnar þrjár og vorum komnar vel í aðra tánna þegar á áfangastað var komið. Ég var nú pínu smeik þegar við vorum að bíða í röðinni eftir vegabréfaskoðuninni, það heyrðist lang hæst í okkur og það sást held ég kannski smá á okkur að við værum ekki alveg með "fulle fem" en okkur var vel tekið og meira að segja beið eftir okkur móttökunefnd! eða nefnd.. hehe Birgitta var búin að panta crazy leigubílstjóra til að keyra okkur heim :)
En ég nenni nú ekki alveg að segja frá allri ferðinni, bara að þetta var YNDISLEGT, geta knúsað Guttorm, Argintætu og "Prom"drottninguna ;) fara á Xanadu, versla, út að borða, fara á Bones sýninguna, labba útum allt á manhattan, fram og til baka hehe :) Þetta var bara frábært!
Takk aftur æðislega fyrir góða ferð systur :haha:

Eftir NY kom ég heim til Íslands og tók á móti 2 sænskum vinkonum frá Danmörku. Við vorum svo heppnar að mamma mín er mamma mín svo hún gat reddað okkur aðeins billigari miðum á airwaves - Takk mamma- Við settumst niður fyrsta daginn til að plana hvað ætti að gera þessa 6 daga og það var ekki lengi gert að fylla dagskránna. Ég hélt nú reyndar að ég gæti fengið eitt kvöld frí frá svía-pössun og gæti sent þær annað, til að ég kæmist aðeins að heimsækja vini mína á Íslandi en það vildi enginn taka þær að sér :( Þykir rosalega leiðinlegt að hafa ekki getað kíkt á nýjasta meðliminn í saumaklúbbnum, litlu prinsessuna hennar Sæunnar :( en ég bíð spennt eftir að sjá þær um jólin :)
Annnars var mjög gaman með stelpunum við fórum í æðislega jeppaferð í boði pabba, uppá Úlfarsfell, þar sem auðvitað erfiðasta leiðin var tekin til að reyna aðeins að hræða sænsku stelpurnar, og svei mér ef það tókst ekki bara hehehe. Við klifum 2 fjöll, Esjuna og eitthvað annað fjall sem ég man ekki hvað heitir hehe (við héldum að við myndum sjá Háafoss ef við klyfum það en svo kom í ljós eftir að við vorum komnar niður aftur að við vorum langt frá fossinum hehe), við fórum í bláa lónið, og sund í Árbæjarlaug, fórum 4 kvöld á tónleika útum alla Reykjavík sem voru misgóðir en það var samt alltaf gaman. Fórum í verslunarferð í kringluna og smáralindina (þeim fannst æði að koma inní verslunarmiðstöð sem er í laginu eins og typpi hehe). Við fórum í roadtrip á Þingvelli, Gullfoss og Geysi og enduðum uppí sumarbústað hjá mér þar sem við fengum okkur nokkra drykki og slökuðum á í heita pottinum undir stjörnubjörtum himni. Við fengum al-íslenska veislumáltíð hjá mömmu þar sem okkur var boðið í lambalæri og allt tilheyrandi, en ég held samt að ég hafi notið þess lang mest :D
Já... ég held að sú saga sé bara búin... langaði samt að segja ég á yndislega foreldra að leyfa 25 ára dóttur sinni og 2 útlenskum vinkonum hennar að hertaka húsið þeirra í næstum viku og gefa okkur fátæku námsmönnunum mat :) Þetta var alveg æðislegt TAKK

Verð samt að enda á því að segja að ég skrapp í leikhúsferð til Kaupmannahafnar í gær, með Ragnheiði og Hjördísi og kærustum (var ss. 5 hjólið;)) á leikritið MR. Skallagrímsson og ég verð að segja að þetta var alveg frábær sýning! Þetta er eins manns sýning Benidikts Erlingssonar sem var alveg rosalega góður, þrátt fyrir fruss og svitaslettur sem þeyttust af honum hehe.
En ég sá samt líka á leikritinu tilvonandi eiginmann minn, hann veit það reyndar ekki sjálfur og ég veit ekkert hvað hann heitir en hann býr líklega í Köben, hann var með hvíta húfu, ef þú veist hver hann er þá máttu endilega segja honum að hringja í mig :)

Jæja nóg að sinni
Ciao

 


» 12 hafa sagt sína skoðun

24.09.2007 08:53:32 / helenadk

Helena Hálfmaraþonhlaupari

Ég er ekkert smá stolt af sjálfri mér :D ég hljóp Hálfmaraþon í gær :D
Ég var reyndar ekkert á frábærum tíma en markmiðið var líka bara að klára ;) Krakkarnir hérna eru æðislegir, stóðu á nokkrum hornum í hlaupinu og kvöttu mig áfram :) Berglind og vinkonur hennar með Íslenska fánann, Lotta og Hjördís á sitthvorum staðnum hlupu meðfram leiðinni með mér smá og það gaf ekkert smá spark í rassinn, foreldrar Christine voru svo með myndavél og keyrðu meðfram leiðinni og stoppuðu til að taka myndir af okkur sveittum og þreyttum á nokkrum stöðum :) En svo var best að koma í mark... heyrði bara hróp og köll alltíeinu þegar ég fór að nálgast, þá stóðu Ragnheiður, Hjördís, Lotta og foreldrar Christine í markinu og stelpurnar sætu með blómvönd handa mér :lol: þær eru nú algjör yndi!!

Annars er lítið að frétta frá Baunalandi, en ég er að fara til NY 12.október og ég get varla beðið :D svo kem ég líka til íslands 17.okt og þá koma sænsku stelpurnar og við ætlum aðeins að skoða Ísland og fara á airwaves :)

Ég skal vera dugleg að skrifa ef þið eruð dugleg að kommenta ;)
ciao


» 11 hafa sagt sína skoðun

03.05.2007 15:02:45 / helenadk

Lítið að gerast hehe

Hallojsa (eins og sænsku vinir mínir myndu segja)
Ég er ekki búin að þora að blogga síðasta mánuð afþví að síðast þegar ég bloggaði um hvað það væri þvílíkt gott og frábært veður og mikil sól og allir í pilsum og stuttbuxum úti í garði að lesa og verða brúnir þá varð fólk svo leitt yfir því að vera fast á klakanum í gráu veðri eða stormi. Þannig að ég ætla að reyna að skrifa hvað ég er búin að vera að gera án þess að minnast á það hvað það er heitt úti og mikil sól.
Ég fór ss. í próf fyrir um 2 vikum, fékk að vita strax eftir prófið að ég hafi náð :) þannig að við fórum og fögnuðum því með því að setjast út í stuttu buxunum okkar og stuttermabolunum (já eða hlýrabolum) og fá okkur bjór.
Svo nokkrum dögum seinna kom ég mér í gang með að byrja að lesa í þessari nýju blok sem ég var að byrja í með því að setjast á teppi fyrir utan húsið mitt með bókina mína og xxxgleraugun og lesa.
Ég fór í æðislegt matarboð til sænskrar vinkonu okkar ásamt 29 öðrum, hittumst fyrst úti í garði hjá henni í fordrykk, stelpurnar allar í kjólum og pilsum með rauðar kinnar og bringur (örugglega bara kinnalitur). Þar var spilað á hin ýmsu hljóðfæri og sungið fram eftir nóttu og svo var labbað heim í sandölunum með létta peysu yfir öxlunum.
Yndislegu foreldrarnir mínir komu í heimsókn síðustu helgi, við keyrðum niður að strönd og löbbuðum í sandinum og fengum okkur ís. Sátum úti við kaffihús borgarinnar með öl við hendina og höfðum það huggulegt. Laumuðumst reyndar inn í nokkrar búðir pabba til mikillar ánægju.
Núna eftir að þau fóru er ég bara búin að reyna að halda mig innandyra í einskonar siestu að reyna að læra en heyri bara í fólkinu fyrir utan í SÓLINNI OG BLÍÐUNNI OG HITANUM að leika sér og brúna sig og hafa það gott þannig að ég held að ég join-i þau bara og hafi bókina með (til að friða samviskuna).
Vejret

Bara svona aðeins til að sýna ykkur veðrið á morgun :D
Ciao úr sólinni


» 8 hafa sagt sína skoðun

25.03.2007 15:32:38 / helenadk

Allt að gerast

Jæja langt síðan síðast
Ég er búin að skreppa heim aðeins, og knúsa alla familíuna. Kom svo út aftur 2 dögum fyrir próf, lærði eins og geðsjúklingur og fór svo í prófið.. á ennþá eftir að fá niðurstöðuna úr því. Fór svo eiginlega beint til Kaupmannahafnar eftir prófið og hitti Sigrúnu og vinkonur hennar og við fengum okkur geggjað sushi og fullt af kokteilum og dönsuðum af okkur rassgatið.
Ég verslaði líka af mér rassgatið í Köben en náði svo að bæta því á mig aftur með öllu góðgætinu sem við létum ofaní okkur ;)
Annars er ég búin að vera í fríi frá skólanum síðustu viku svo við Hjördís erum bara búnar að hafa það notalegt og rölta í bæinn og setjast á kaffihús og svona notalegt.. enda er líka komið þetta þvílíkt góða veður hérna :) alltaf sól og blíða!
Ég fór reyndar líka á 2 vaktir, önnur var 12 tíma vakt í Haderslev sem er lengst í rassgati þannig að með ferðalaginu tók þetta alveg 17 tíma 8| og ég var líka að deyja þegar ég kom heim!
Verð samt að segja aðeins frá vaktinni... sjúklingurinn átti að vera rosalega órólegur en svaf bara þegar ég kom, vaknaði á svona hálftíma fresti og horfði á mig og veifaði til mín, tók stundum hendina á mér og kyssti hana, hehe, algjört krútt. Svo kl.3 kom hjúkka og spurði hvort ég vildi ekki fá smá pásu og ég alveg ótrúlega fegin, enda að deyja úr þreytu, fór fram í eldhús að fá mér að borða. En svo svona 5 mínútum eftir að ég settist niður þá heyrði ég bara í sjúklingnum mínum öskra og ég hljóp fram til að athuga hvort ekki væri allt í lagi, þá  hafði hjúkkan vakið greyið manninn með látum og ljósum, sem varð við það alveg rosalega illa áttaður, og þarna skyndilega var ég komin með honum í seinni heimsstyrjöldina!!
Hjúkkan var Hitler og þær hinar hjúkkurnar og aðstoðarfólkið á deildinni allt illmenni og óþokkar. Ef það heyrðist eð frammi á gangi voru það sprengjur og byssuskot og þær hjúkku-Hitlerarnir voru allar að reyna að ná okkur. Helvítis þrjótarnir. Ég var sem betur fer með honum í liði þannig að eftir að hafa reynt að babla e-ð við manninn á þýsku tókst mér á endanum að róa hann niður. Ég vorkenndi manninum ekkert smá, sá það á honum að hann var bara alltíeinu komin aftur í tíma og var ekkert smá hræddur.
Jæja þetta var nú skemmtileg saga...
Allavegana ætla ég að fara að horfa á nokkra Íslenska gutta spila handbolta með dönsku liði, það er nebblega Skjern-ABA í sjónvarpinu!
Ciao í bili

» 9 hafa sagt sína skoðun

28.02.2007 22:40:31 / helenadk

Fiðrildi í mallakút

Híhíhíhíhí ég er alveg með fiðrildi í maganum þessa dagana.. svo vill nebblega til að ég á afmæli bráðum.. (byrja að auglýsa það snemma ;) ) og ég fæ afmælisheimsókn frá litlum snillingi á morgun! Hún ætlar að koma og vera með mér alla helgina og við ætlum að gera allt múligt skemmtilegt saman!! Borða góðan mat, partýjast, láta eins og kjánar og bara hafa það ógeðslega næs!
Ég sem er svo mikið afmælisbarn held að ég myndi deyja ef ég þyrfti að vera ein á afmælinu mínu!! Sérstaklega núna þar sem maður er að halda uppá stórafmæli (tvítugsafmæli)!
Fyrir ykkur sem ekki vitið þá á ég afmæli á mánudaginn 5.mars og síminn hjá mér er 26429965 og hérna til vinstri er linkur þar sem þið getið sent mér ókeypis afmælis-sms :D
Jæja ég skrifa betur á sjálfan afmælisdaginn, ætla að vera dugleg að læra svo ég geti eytt sem mestum tíma með Frábæru Mörthu minni :haha:
Ég verð dugleg að taka myndir um helgina og set inn myndir af okkur Mörthu bráðum :D
Þanngað til næst (þegar ég verð árinu eldri)
CIAO

» 11 hafa sagt sína skoðun

16.02.2007 10:31:38 / helenadk

Heimskur hlær ad sjálf síns fyndni

Ég hlýt ad vera naut-heimsk :lol:
Mér finnst ég nefnilega ein af fyndnustu manneskjum í heiminum. Ég átti svo bágt med mig í gær kvöldi, var ad reyna ad sofna en fór ad hugsa um afmæli og fór útfrá tví ad hugsa um fína úrid sem ég er búin ad fá í afmælisgjöf frá systrum mínum. Út frá tví fór ég ad hugsa um ef ég ætti úrabúd svo bara skaust uppí hausinn á mér .. tá myndi ég audvitad skýra hana... "Úr ad ofan" hahahahahaha ég dó næstum tví. Tad eru svolítid tunnir veggir milli íbúdanna í húsinu mínu og ég var ad reyna ad hemja mig ad hlæja ekki of hátt en ég gat bara ekki stillt mig. Ég hló og grét svo mikid ad koddinn minn var ordinn blautur og ég turfti ad snúa honum vid tegar ég var búin ad jafna mig. Ég er ad skrifa hérna í skólanum og er aftur komin med tárin í augun. Vona ad ykkur finnist tetta jafn fyndid og mér :haha:

Annars er ég enntá ad bída eftir fínu tölvunni minni, sendi teim kvörtunarbréf og teir bádust afsökunnar og lofudu ad hún kæmi á mánudaginn.
En ég fékk ótrúlega gódar fréttir í vikunni, Martha sæta ætlar ad koma til mín og vera med mér á afmælishelginni minni og vonandi hluta af sjálfum afmælisdeginum :D
Tad verdur alveg yndislegt ad fá hana og hún verdur ad sjálfsögdu heidursgestur í afmælisveislunni sem ég og Ragnheidur höldum saman tann 3.mars.
Hlakka ekkert smá til ad fá hana :haha:

Hef vonandi fleiri home made brandara ad segja ykkur brádlega

Ciao


» 12 hafa sagt sína skoðun

10.02.2007 12:42:33 / helenadk

Jæja þá :P

Ég verð samt að vara ykkur við sem eruð ýta undir að ég bloggi... ég hef voðalega lítið að segja!! en það verða samt allir að vera duglegir að kommenta!

Jæja.. hvað á ég að segja ykkur... á ég að segja ykkur...
hvað það er ÓGEÐSLEGA kalt alltíeinu í Danmörku? eða...
að ég er að fara að kaupa mér nýja GEÐVEIKT flotta tölvu? eða...
að mér finnst HRIKALEGA spennandi að læra um hjartað? eða...
að mig langar GEGGJAÐ að fara í heimsókn til Heiðu vinkonu í sumar? eða...
hvað ég hlakka ÝKT til afmælisveislunnar minnar? eða...
að ég á eftir að sakna Önnu Nicole Smith ÓTRÚLEGA mikið? eða...

Æ ... ég held að ég geymi það að segja ykkur þetta og segi bara það var ótrúlega gott að vera heima í 3 mánuði og ég sakna ykkar ekkert smá mikið... meira en Önnu Nicole!

En þar til næst
Ciao


» 7 hafa sagt sína skoðun

27.12.2006 17:10:21 / helenadk

Gleðileg Jól

Gleðileg jól

Ég er svo mikill sauður í jólakortaskriftum (eða bara almennt) og sendingum, hef held ég aldrei sent jólakort. Ætla alltaf að gera það en finn alltaf einhverjar afsakanir fyrir því að gera það ekki (yfirleitt bara leti). En ég ákvað það á aðfangadag að senda allavegana jólasms. Skrifaði smsið valdi svo haka við alla en var þó svo sniðug að taka út nokkra sem ég gaf jólagjafir svo ég væri nú ekki að senda á familíuna og svona, en fattaði ekki að auðvitað er maður með símanúmer hjá fólki stimplað inn í símann sem kannski er ekki alveg ætlunin að senda jólasms á! Sem betur fer sendist þó ekki til dönsku vinanna þar sem það vantar 0045 fyrir framan og Taxi númerin eru ekki gsm símar heheh. En maður á kannski ekkert að spá í það auðvitað er bara gaman að fá jólakveðjur frá hverjum sem er ... Er það ekki?


» 5 hafa sagt sína skoðun

23.11.2006 19:52:45 / helenadk

Aftur til Dk

Maður er ekki fyrr kominn heim þegar maður er að fara út aftur! Furðulegt að vera á leiðinni út en vera ekki að fara til Óðinsvéa. Ég er að fara með familíunni á julefrokost í Kóngsins Köben, auk þess verður líklega verslað eitthvað þó að ég sé alveg á kúpunni. Engar áhyggjur samt ég kem aftur á sunnudaginn :P
Er búin að vera á skurðdeildum síðustu vikur og búin að skemmta mér alveg stórkostlega! Allt svo æðislegt og allir (eða lang flestir) taka svo vel á móti mér að það er alveg með ólíkindum. Búin að fá að gera alveg ótrúlega mikið og fá alveg slatta af fallegum hrósum :haha:
Núna get ég bara ekki beðið eftir að klára skólann og komast oftar í hvíta sloppinn og hafa stetoscopið um hálsinn og kannski fá að prufa að hafa neyðarpíptækið í vasanum, mér finnst það alveg ótrúlega heillandi og þeir sem eru með það virka svo ómissandi og merkilegir. En það eru víst nokkur ár í það ;)
Jæja þá er að pakka - eitt það leiðinlegasta í heimi
Ciao

» 2 hafa sagt sína skoðun

08.11.2006 16:49:44 / helenadk

Blendnar tilfinningar

Ég veit að ég er búin að lýsa því yfir hversu mikið ég hlakka til að koma heim í klíník en ég verð að viðurkenna það að það koma upp soldið blendnar tilfinningar þegar ég hugsa um það núna. Auðvitað hlakka ég ótrúlega til að koma heim og hitta alla, knúsa börnin mín og fara í klíník en ég á líka eftir að sakna þessara vitleysingja sem eru með mér í skólanum. Eftir að við fórum í bústaðaferðina finnst mér ég bara þekkja svona helmingi fleirri og það eru allir bara eitthvað svo samheldnir í bekknum. Það verður erfitt að kveðja þau í þrjá mánuði.
En að öðru ég skellti mér til Horsens um síðustu helgi þar sem Helgi Páll og vinir tóku mér með opnum örmum og sýndu mér næturlífið þar á bæ. Ég reyndar algjör auli gafst of snemma upp (klukkan samt 3) enda var ég búin að vera á fredagsbar í skólanum frá kl 3 um daginn. Þau voru svo sæt að skutla mér aftur til Óðinsvéa daginn eftir.
Á laugardaginn var svo ruglinu haldið áfram þar sem við fórum í teiti hjá Lottu, sænsku vinkonu minni og eftir það í afmæli hjá Davíð, þar sem við hittum fullt af skemmtilegu fólki :lol:
Núna eru bara 2 dagar eftir í skólanum og 3 dagar þanngað til að ég kem heim. Þannig að framundan er meira rugl þegar við förum og kveðjum liðið.
Býst ekki við því að skrifa meðan ég er á klakanum ;)
Ciao ciao


» 3 hafa sagt sína skoðun

30.10.2006 15:21:35 / helenadk

Verslað á grensunni

Það er frekar erfitt að skrifa bloggfærslur núna því það er bara svo lítið að frétta af mér. Ég er bara að tjilla alla daga.. ótrúlega nice! Frekar óvön þessu samt, geta komið heim á kvöldin, eftir skóla, og þurfa ekki að hafa áhyggjur og samviskubit yfir lestrinum.
Fyndið að þegar maður á að vera að lesa langar mann bara til að gera allt annað, þessvegna vaska upp (nei kannski ekki alveg) en svo þegar maður þarf ekki að lesa og getur bara hangið og horft á sjónvarpið þá er það ekki eins skemmtilegt og maður ýmindaði sér. Núna þegar ég má horfa á sjónvarpið langar mig að lesa og tek upp ótrúlegustu bækur til að glugga í, meira að segja bækur sem mér fannst leiðinlegar þegar ég þurfti að kunna þær utan að.
Við skruppum reyndar til Þýskalands á laugardaginn, smá roadtrip. Mamma og pabbi sætustu í heimi voru að gefa mér BS. gjöf, þó að ég sé ekki strangt til tekið orðin BS., Biblíu danska læknanemans, Medisinsk kompendium, svo við Hjördís og Atli skruppum niðureftir til að ná í nokkur stykki á billigere pris en í DK. Takk M og P :haha:  Auðvitað notuðum við líka ferðina í að fylla á vínskápinn og jólanammið, smakka þýskan mcdonalds, og athuga hvort að það sé e-ð sem menntaskóla-þýskan skildi eftir sig og ég verð að segja að það er fáránlega lítið! Eina sem ég man eru lögin sem við sungum á hverjum einasta föstudegi og þá helst lagið Ti amo sem er ekki einu sinni þýska heheh.
Svo eyði ég bara deginum í dagdrauma um klíníkina á íslandi. Ég hlakka svo til, að bara við að hugsa um það núna fæ ég fiðrildi í magan og risa bros á varirnar og það tístir í mér híhíhí :lol:
En svo verður líka svo ljúft að hitta familíuna og stelpurnar, ég er eiginega komin með eina tána á Ísland.
Kem heim eftir tæpar 2 vikur :)

Ciao í bili

» 6 hafa sagt sína skoðun

09.10.2006 18:55:26 / helenadk

Grenjað á gresjunni

Ég hélt að augun myndu detta úr mér í gær ég grét svo mikið! Við vorum að horfa á svo ótrúlega góða mynd sem heitir Efter Brylluppet heima hjá Hjördísi, hún var alveg frábær. Það verða allir að sjá hana. Ég og Hjördís grétum saman næstum helminginn af myndinni meðan Atli og Ragnheiður hlóu að okkur :) Ég reyndi að hemja mig svona fyrst en svo var það bara ekkert að ganga svo ég hleypti flóðinu bara af stað hehehe.
Það getur reyndar verið að þreyta hafi haft áhrif á það að ég gat ekki haft stjórn á mér enda vorum við á árshátíð 2 dögum áður og ég er ekki frá því að ég hafi bara ennþá verið pínu þunn eftir það!
Árshátíðin var geggjuð, við borðuðum 27 úr bekknum heima hjá einni, komum öll með mat og lögðum í púkk svo það var allt of mikið af mat! Fórum svo uppí háskóla (rétt misstum af drollu sem kom í heimsókn í skólann) og dönsuðum og dönsuðum og dönsuðum og drukkum kannski soldið ;)

Man ekki hvernig á að setja inn myndir hérna svo ég bendi bara á okt. 06 línkinn hérna við hliðina á ;)

Ciao


» 9 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5